Afghan Hound
  Fjölskyldan
  Gestabók
  Heilsufar
  Hundarnir okkar
  Hvolpar-Got
  Labrador Retriever
  Myndir
  Ræktunin
  Sagan
  Sýningar og úrslit
  Tenglar
  Tibetan Spaniel
  Tíbráar Tinda meistarar
  Ungir sýnendur




Hundarnir okkar eru fóðraðir á

 

 

Chelsea 4 ára!
Prinsessan okkar hún Chelsea (ISCH Punapaulan Yasmin) er 4 ára í dag. Til hamingju með afmælið!

26/01/2009
 




Afmælisbörn dagsins: Vikki og Tíbrá!

Við óskum afmælisbörnum dagsins, Finnunum okkar þeim Vikka og Tíbrá, innilega til hamingju með daginn!

Vikki er orðinn 9 ára og Tíbrá 4 ára :)

Mynd: Tíbrá afmælisstelpa  

18/01/2009
 




Gleðilegt ár! Tamino 11 ára í dag!

Við óskum öllum vinum okkar, nær og fjær, gleðilegs árs!


Kóngurinn okkar, INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino, er 11 ára í dag, Nýársdag. Til hamingju með afmælið elsku Tamminn okkar!  


 

1/01/2009
 




Jólakveðja!
Við óskum ykkur öllum, nær og fjær, gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.

Þökkum allt liðið!

Jólakveðja, Auður, Geiri, Auður Sif og voffarnir. 25/12/2008
 




Til hamingju með afmælið Tangó!
Tangó okkar varð 7 ára þann 23. desember sl.

Til hamingju með afmælið prinsinn okkar! 25/12/2008
 



Nýr Labrador-strákur!

Við bjóðum Osku velkominn til landsins!


Talimar Mallons Storm Warning eða Osku, eins og hann er kallaður, kom til okkar í gær, 20. nóvember.


Hann er í eigu Auðar Valgeirsdóttur og Guðsteins Eyjólfssonar en mun búa í góðu yfirlæti hjá Halldóri Halldórssyni og fjölskyldu "Helgufoss ræktun"


Osku kemur frá Mallorn´s ræktun Finnlandi en er ræktaður í Bandaríkunum. Hann er HD/ED A (frír), PRA/clear og hefur unnið sér inn þrjú finnsk meistarastig.


Osku er algjör draumaprins og er vart hægt að finna hund með yndislegra skap!  

Við þökkum Anu kærlega fyrir að treysta okkur fyrir þessum yndislega Labba-strák :)


Ps. Loksins komin ný gestabók! :) Endilega kvittið!

21/11/2008
 




Tíbráar Tinda S-gotið 4 ára í dag!

Við óskum Labradorunum Tíbráar Tinda Serenu Sól, Snerpu Sól, Skorra, Sóloni Snæ, Stóra Hyl og Svarta Sambó (Bassa) til hamingju með 4 ára afmælið :)


 


Mynd: Serena Sól

17/11/2008
 




Augnskoðun og afmæli Flórensar!

Tíbet spaniel hundarnir Tíbrá og Tangó voru augnskoðuð í október og niðurstöðurnar voru þær að þau eru án arfgengra augnsjúkdóma!


Í október átti gamla daman okkar hún Flórens afmæli og er hún orðin 13 ára. Hún er við góða heilsu og passar vel upp á að ráðskast reglulega með heimilisfólk og hunda.


Mynd: Tíbráar Tinda Tango For Two  

17/11/2008
 




Besti öldungur sýningar - Nýr ISCH - Nýr INT CH :)!

Alþjóðleg haustsýning HRFÍ 27.-28. september 2008

Labrador retriever - Dómari Fredrik Norgren frá Svíþjóð (57 skráningar)
BHT 1 - meistarastig, cacib - Tegundahópur 3. sæti: Tíbráar Tinda Serena Sól
Besti rakki 4: Tíbráar Tinda Töffarinn Jenni
2. sæti í opnum flokki, excellent: Tíbráar Tinda Tígurinn Tumi

Afghan hound - Dómari Jose Luis Payro frá Mexíkó
BHT 2- meistarastig, cacib - Punapaulan Yasmin "Chelsea"
Besti hvolpur tegundar 1 - Affietude King of Pride Rock "Safír"
Besti hvolpur tegundar 2 - Affietude Standing in the Spotlight "Díva"
Besti rakkahvolpur 2-heiðursverðlaun - Affietude Hakuna Matata "Valiant"
Besti tíkarhvolpur 2-heiðursverðlaun - Affietude It´s Magic Everywhere "Kiara"

Tíbet spaniel - Dómari Juan Luis frá Mexíkó
BHT - Tegundahópur 2. sæti: INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix "Tíbrá"
BHT 2 - Besti öldungur sýningar 1: INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino
BR 2-cacib (INT CH): ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo

Mynd: Tamino og Auður Sif í stóra hringnum  

1/10/2008
 




Fígó orðinn pabbi!
Laugardaginn 19. júlí sl. fæddi Tessie (ISCH Toyway Ca-Isla) tvo stráka en stoltur faðir hvolpanna er ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo.

Áhugasamir hafi samband við Berglindi Jónsdóttur hjá Perlu-Lindar ræktun á netfangið bbj@simnet.is
eða Auði Valgeirsdóttur í s. 557-5622 e. kl. 13.

22/07/2008
 




Sumarsýning HRFÍ!
Sumarsýning HRFÍ var haldin helgina 28.-29. júní sl.

Á laugardeginum voru Labrador hundarnir sýndir og var dómarinn að þessu sinni Henric Fryckstrand frá Svíþjóð. Besti hundur tegundar var Volcano´s Royal Affaire Extraordinaire sem er pabbi Tíbráar Tinda T-gotsins. Þetta var í annað sinn á einum mánuði sem Lubbi sigraði tegundina! Hreint út sagt frábær árangur :)

Tíbráar Tinda Serena Sól var 3. besta tík tegundar með meistaraefni.

Tíbráar Tinda Lóla varð í 1. sæti í unghundaflokki með excellent.

Á sunnudeginum var komið að Tíbet spaniel hundunum og voru þeir dæmdir af Kurt Nilson frá Svíþjóð. Tíbrá (INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix) var valin besti hundur tegundar og komst svo í 6 hunda úrslit í tegundahópi 9. Fígó (ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo) varð besti rakki tegundar.

Mynd: Auður Sif og Tíbrá ásamt Kurt Nilson dómara 22/07/2008
 




Sérsýning Retrieverdeildar HRFÍ á Fossatúni!
Sérsýning Retrieverdeildar HRFÍ var haldin á Fossatúni 14. júní sl.

Tíbráar Tinda Töfrandi Lóla var valin 2. besta tík tegundar aðeins 16 mánaða gömul!
Pabbi Lólu, Volcano´s Royal Affaire Extraordinaire, var valinn besti hundur tegundar og besti hundur sýningar :)

Mynd: Lóla á Fossatúni

22/07/2008
 




Tíbrá alþjóðlegur meistari!
Tíbrá fékk á dögunum staðfestingu frá FCI um það að hún er orðin alþjóðlegur meistari! Þannig að núna ber hún nafnið INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix :) 22/07/2008
 




Affietude Afghan Hound!

Dóttir okkar, Auður Sif, fékk sitt eigið ræktunarnafn samþykkt hjá FCI. Ræktunarnafnið er Affietude og mun hún auðkenna ræktun sína á Afghan Hound með þessu glæsilega ræktunarnafni.
Innilega til hamingju!

Nýjar myndir af hvolpunum má finna á þeirra eigin myndasíðu sem er http://picasaweb.google.com/auja83

16/05/2008
 




Augnskoðun-Góðar fréttir!
Tíbráar Tinda Serena Sól (Labrador), ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo og Toyway Akbar Khan "Vikki" voru öll augnskoðuð 12. apríl sl. og án arfgengra sjúkdóma.

Afkvæmi Fígós þau Perlu-Lindar Ísadóra og Perlu-Lindar Jökull voru einnig augnskoðuð og eru án arfgengra sjúkdóma. 17/04/2008
 



Nýjar myndir af hvolpunum!

Nýjar myndir eru komnar af hvolpunum í albúmið þeirra :) Þeir eru 6 daga gamlir í dag og dafna allir vel!

Smelltu hér til að sjá myndirnar af krúttunum.  

12/04/2008
 




Afghan hvolpar komnir í heiminn!

6 Afghan hvolpar litu dagsins ljós 6. og 7. apríl. 3 strákar og 3 stelpur.


Strákarnir eru í litunum back and tan, golden black masked og cream en stepurnar black and tan (2) og golden black masked.


Hvolparnir voru allir fæddir í góðri þyngd. Móður og hvolpum heilsast vel.  


Fleiri myndir hér

8/04/2008
 




Afghan hvolpar væntanlegir!

Afghan Hound hvolpar eru væntanlegir í byrjun apríl undan Punapaulan Yasmin "Chelsea" og INT CH NORD CH ISCH DK CH FINCH Punapaulan Oleksi. Chelsea og Ollie eru bæði með yndislegt skap og hafa verið sýnd með frábærum árangri (Chelsea 2 meistarastig og 2 Cacib-Ollie margfaldur meistari).

Þess má geta að Ollie var stigahæsti öldungur ársins 2007 og í 3. sæti yfir stigahæsta hund ársins 2007. Bæði eru þau augnskoðuð án athugasemda.

Hvolparnir verða líklega í litunum golden black masked, black and tan og cream.

Hér eru nokkrar myndir af bumbubínunni :)

Mynd: Chelsea bíður þolinmóð eftir gotinu

27/03/2008
 




Gleðilega páska!!
Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska!

Systkinin Lóla og Tumi skemmtu sér vel í göngutúr á Föstudaginn langa :) 23/03/2008
 




Tíbráar Tinda R-got 5 ára í dag!
Innilega til hamingju með afmælið til allra Labbanna í Tíbráar Tinda R-gotinu!
R-gotið skipa: Tíbráar Tinda Regína Rós, Rympa Rós, Ronja Rós, Rökkvi, Romeó Casanova, Rúfuz Argus og Róbert.

Mynd: TT Romeó Casanova á harðaspretti sem hvolpur. 5/03/2008
 




Alþjóðleg vorsýning HRFÍ!
Alþjóðleg vorsýning HRFÍ fór fram helgina 1.-2. mars sl. og gekk okkar hundum vel.

Tíbrá (ISCH Toyway Ama-Ry-Lix) var besti hundur tegundar með sitt 4. Cacib og er núna búin að uppfylla kröfur fyrir Alþjóðlegan meistaratitil sem við bíðum staðfestingar á. Tíbrá varð í 4. sæti í tegundahópi 9 en mikil og hörð keppni var í honum eða 18 tegundir.
Fígó (ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo) var besti hundur tegundar 2 með sitt 3. Cacib.
Dómari Tíbet spaniel hunda var Arne Foss frá Noregi.

Tíbráar Tinda Töffarinn Jenni var í 1. sæti í ungliðaflokki með heiðursverðlaun.
Systur hans voru tvær af fáum sem héldu áfram keppni í ungliðaflokki Labrador tíka. Tíbráar Tinda Tunglskins Nótt var í 3. sæti og Tíbráar Tinda Töfrandi Lóla í 5. sæti.
Jenni, Nótt og Lóla voru fulltrúar Tíbráar Tinda ræktunar í ræktunarhóp og voru besti ræktunarhópur tegundar með heiðursverðlaun. Dómari Labradora var Nils Molin frá Svíþjóð.

Mynd; Tíbrá og Auður Sif í 4. sæti í tegundahópnum. 5/03/2008
 




Heilsufar!
Vorum að uppfæra upplýsingar um heilsufar hundanna okkar sem og allra Tíbráar Tinda Labrador-hunda og Tíbet spaniel undir "Heilsufar". 7/02/2008
 



Lóla og systkini hennar eru 1 árs í dag!
Hún Lóla okkar og systkini hennar úr Tíbráar Tinda T-goti eru 1 árs í dag! Tíbráar Tinda T voffar eru: Töfrandi Lóla, Tunglskins Nótt, Töffarinn Jenni, Tígurinn Tumi, Tarzan Tinni, Trukkurinn Skuggi og Trausti Kolur.

Til hamingju með afmælið allir saman!

Mynd: Lóla í snjónum á afmælisdaginn :)

7/02/2008
 




Fjóla 14 ára í dag!

Í dag á elsta daman okkar hún Fjóla (ISCH Nalinas Morchella De´Adonis) afmæli en hún er orðin 14 ára og er aldursforsetinn í hópnum.
Innilega til hamingju með afmælið elsku Fjólan okkar :)  


 

4/02/2008
 




Tíbrá besti hundur sýningar 4!

Sérsýning fyrir tegundahóp 9 var haldin á sunnudaginn var og gekk okkur frábærlega! Dómari Tíbet spaniel var Kitty Sjong frá Danmörku.


Tíbrá (ISCH Toyway Ama-Ry-Lix) gerði sér lítið fyrir og var valin besti hundur tegundar og besti hundur sýningar 4!
Fígó (ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo) var besti hundur tegundar 2.
Perlu-Lindar Ísadóra sem við eigum ásamt Berglindi Jónsdóttur, var besta tík 2 og fékk sitt annað meistarastig!  

28/01/2008
 




Chelsea 3 ára!
Í dag á Afghan prinsessan Chelsea afmæli og er daman orðin 3 ára gömul!

Til hamingju með afmælið!

26/01/2008
 




Til hamingju með afmælið!!

Finnarnir okkar, þau Tíbrá (ISCH Toyway Ama-Ry-Lix) og Vikki (Toyway Akbar Khan) áttu afmæli þann 18. janúar. Tíbrá er orðin 3 ára og Vikki 8 ára.

Til hamingju með afmælin! Kossar og knús!  

Mynd: Tíbrá og besta vinkona hennar, Chelsea :)

19/01/2008
 




Stigahæstu Tíbet spaniel hundar ársins 2007!

INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino var stigahæsti Tíbet spaniel hundur ársins 2007 skv. lista HRFÍ. Tamino var jafnframt stigahæsti


Tíbet spaniel öldungur ársins í yngri flokki. ISCH Toyway Ama-Ry-Lix "Tíbrá" var stigahæsta Tíbet spaniel tíkin 2007!


Mynd: Tíbrá (til vinstri) ásamt vinkonu sinni Flórens (INT CH ISCH Tíbráar Tinda Florens) 12 ára  

1/01/2008
 




Tamino 10 ára!

Kóngurinn okkar hann Tamino (INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino) er orðinn 10 ára! Til hamingju með afmælið elsku drengurinn okkar :)


Okkar bestu afmælisóskir til bróður Tamma, ISCH Tíbráar Tinda Papageno!


Knús og kossar!  

1/01/2008
 




Tangó afmælisbarn!
Tíbba-drengurinn okkar hann Tangó (ISCH Tíbráar Tinda Tango For Two) á afmæli í dag. Prinsinn okkar er orðinn 6 ára! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!

Til hamingju með daginn elsku Tangó okkar :)


23/12/2007
 




Gleðileg jól!
Við óskum öllum vinum okkar nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hafið það sem allra allra best yfir hátíðirnar!

Jólakveðjur, Auður, Geiri, Auður Sif og allir voffarnir

Mynd: Chelsea jólastelpa







23/12/2007
 




Flórens 12 ára í dag!

Prinsessan okkar hún Flórens (INT CH ISCH Tíbráar Tinda Florens) er 12 ára í dag!
Til hamingju með afmælið litla dósin okkar :)Hamingjuóskir til bræðra Flórensar þeirra Balta og Monza.
Mynd: Flórens 12 ára


 


  

13/10/2007
 




Haustsýning HRFÍ!

Helgina 6.-7. október sl. var haustsýning HRFÍ haldin í Víðidal. Hundum í okkar eigu og ræktun gekk vel á sýningunni.
Tíbrá (ISCH Toyway Ama-Ry-Lix) var valin besti hundur tegundar, fékk sitt 3. cacib og lenti í 6 hunda úrslitum í tegundahópi 9. Dómari Tíbet spaniel var Harry Tast frá Finnlandi.
Labrador prinsinn Tíbráar Tinda Skorri var valinn 3. besti rakki tegundar með vara-cacib. Dómari var Harry Tast frá Finnlandi.
Afghan Hound tíkin Chelsea (Punapaulan Yasmin) var valin besta tík tegundar 2 með sitt annað cacib. Dómari var Tomasz Borkowski frá Póllandi.

Hamingjuóskir til Ástu Maríu sem er stoltur eigandi Afghan Hound rakkans NORD CH FIN CH DK CH ISCH Punapaulan Oleksi "Ollie" en hann var besti hundur tegundar, besti öldungur tegundar, sigurvegari tegundahóps 10 og endaði loks sem besti öldungur sýningar í yngri öldungaflokki. Ollie er stigahæsti öldungur ársins í yngri öldungaflokki!

Hamingjuóskir til Guðsteins Eyjólfssonar góðvinar okkar en hann er stoltur eigandi NORD CH Uncle Tom Of Brownback Cottage, besta rakka og öldungs tegundar og Bláskóga Selju, bestu tíkar tegundar í Labrador en þess má geta að rúmlega 70 Labrador hundar voru skráðir á sýninguna. Öldungurinn Úlli var svo valinn besti öldungur sýningar í eldri öldungaflokki! Úlli er faðir Tíbráar Tinda R-gotsins.  

Mynd: Auður Sif og Tíbrá ásamt dómaranum Harry Tast.

12/10/2007
 




Fígó 5 ára í dag!
ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo eða Fígó töffari á afmæli í dag og er hann orðinn 5 ára gamall! Til hamingju með afmælið! 30/08/2007
 




Nýjar myndir af Chelsea!

Vorum að setja inn nýjar myndir af Chelsea. Endilega kíkið á!  

13/08/2007
 




Deildarsýning Retrieverdeildar HRFÍ!

Deildarsýning Retrieverdeildar HRFÍ fór fram á Fossatúni í Borgarfirði sunnudaginn 15. júlí sl. Dómari sýningarinnar var Connie Svane Petersen frá Danmörku. Tíbráar Tinda hundum gekk vel á sýningunni og voru allir með 1. einkunn og frábæra dóma.
Tíbráar Tinda Töffarinn Jenni var valinn besti hvolpur tegundar og besti hvolpur sýningar!
Bræður hans þeir Tígurinn Tumi og Trausti Kolur voru einnig sýndir og stóðu sig vel. Tumi varð í 2. sæti og Kolur í því 3.
Systurnar Tunglskins Nótt og Töfrandi Lóla voru sýndar og var Nótt í 1. sæti með heiðursverðlaun og Lóla í 2. sæti, einnig með heiðursverðlaun.
Tíbráar Tinda ræktunarhópur sem samanstóð af TT Serenu Sól, Sóloni Snæ og Rympu Rós var besti ræktunarhópur tegundar með heiðursverðlaun og einnig besti ræktunarhópur sýningar.  

Mynd: Tíbráar Tinda Töffarinn Jenni, besti hvolpur sýningar, ásamt Ernu, eiganda sínum

23/07/2007
 




Sumarsýning HRFÍ!

Sumarsýning HRFÍ var haldin helgina 23.-24. júní sl. og gekk okkar hundum og hundum úr okkar ræktun frábærlega á sýningunni!
Tíbet spaniel hundarnir voru sýndir á laugardeginum og dæmdir af Fernando Madeira Rodrigues frá Portúgal. Tíbráar Tinda Tango For Two fékk sitt 3. meistarastig og bíður núna staðfestingar á meistaratitli sínum (ISCH). INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Tamino 9,5 ára var besti hundur tegundar og endaði í 2. sæti í tegundahópi 9. Tamino var einnig besti öldungur tegundar og lenti í 6 hunda úrslitum í valinu um besta öldung sýningar í yngri flokki. ISCH Toyway Ama-Ry-Lix var besti hundur tegundar 2 og Perlu-Lindar Ísadóra fékk sitt 1. meistarastig og var besta tík 2. Tíbráar Tinda ræktunarhópur, sem samanstóð af Tamino, Tango og Fígó fékk heiðursverðlaun og var valinn 2. besti ræktunarhópur dagsins.
Á sunnudeginum var komið að Labradorum og Afghan hound en báðar tegundir voru dæmdar af Göran Bodegård frá Svíþjóð.
Tíbráar Tinda Skorri var valinn besti hundur tegundar og endaði í 3. sæti í tegundahópi 8. Tíbráar Tinda Serena Sól var valin 2. besta tík tegundar og fékk sitt 1. meistarastig! Tíbráar Tinda ræktunarhópur sem samastóð af Skorra, Serenu og Sóloni Snæ, fékk heiðursverðlaun og endaði í 3. sæti í keppni um tegundahóp dagsins. Einnig voru Tíbráar Tinda hvolparnir Töfrandi Lóla, Tígurinn Tumi, Tunglskins Nótt og Töffarinn Jenni sýndir og fengu þau öll frábæra dóma.
Afghan Hound tíkin Punapaulan Yasmin endaði sem 2. besta tík tegundar.  

Mynd: INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Tamino

27/06/2007
 




+ Karólína Kátína!
Elsku drottningin okkar hún Karólína Kátína er farin frá okkur en hún dó 23. maí sl. Karólína var búin að stríða við erfið veikindi um nokkurt skeið sem ekki var hægt að lækna.

Elsku yndið okkar, hvíldu í friði. Þú munt lifa í hjörtum okkar um alla tíð. 27/06/2007
 




Nýjar myndir af hvolpunum!

Nýjar myndir eru komnar af hvolpunum sem eru 6 vikna í dag!


Kíkið á myndirnar hér

21/03/2007
 




Vorsýning HRFÍ!

Vorsýning HRFÍ var haldin helgina 3.-4. mars sl. Á laugardeginum voru Labrador hundarnir sýndir og var dómarinn Blaž Kavĉiĉ frá Slóveníu. Fleiri tugir Labrador hunda voru sýndir á sýningunni eða yfir 60 talsins.

Tíbráar Tinda Labradorum gekk vel á sýningunni.

Tíbráar Tinda Skorri var valinn besti rakki tegundar og fékk sitt 3. meistarastig og 3. cacib.
Tíbráar Tinda Snerpa Sól, Rómeó og Regína fengu öll 1. einkunn og var Tíbráar Tinda ræktunarhópur. sem samanstóð af Snerpu, Skorra, Rómeó og Regínu, valinn besti ræktunarhópur tegundar, með heiðursverðlaun.
Í úrslitum sýningar var svo ræktunarhópurinn valinn besti ræktunarhópur dagsins!

Á sunnudeginum mættu Tíbet spaniel hundarnir til leiks og var dómarinn Cathy Delmar frá Írlandi. 
ISCH Toyway Ama-Ry-Lix "Tíbrá" var valin besti hundur tegundar með sitt 2. cacib.
Besti rakki tegundar var sonur Fígós okkar hann Perlu-Lindar Jökull með sitt fyrsta meistarastig.
Besti öldungur tegundar var INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino.  
Mynd: Tíbráar Tinda Skorri

14/03/2007
 




Hvolparnir með eigin síðu!

Gotið þeirra Rympu og Lubba á sína eigin síðu núna. Endilega kíkið!  

21/02/2007
 




Hvolpar fæddir 7. febrúar!
Rympa eignaðist 7 svarta hvolpa miðvikudaginn 7. febrúar sl. 5 stráka og 2 stelpur!

Bæði móður og hvolpum heilsast vel og voru hvolparnir nánast allir jafn þungir við fæðingu!
10/02/2007
 




Tíbráar Tinda Labrador hvolpar væntanlegir!

Labrador tíkin Tíbráar Tinda Rympa Rós á von á hvolpum í kringum 12. febrúar nk. Stoltur faðir hvolpanna er Volcano´s Royal Affaire Extraordinaire "Lubbi" sem er innfluttur frá Bandaríkjunum.

Báðum hefur gengið mjög vel á sýningum HRFÍ. Rympa er með 1. einkunn, meistarastig og vara Cacib og Lubbi með 1. einkunn, meistaraefni og vara Cacib.

Bæði eru mjaðma-og olnbogamynduð (HD-ED) með A (frí) niðurstöður. Einnig eru þau augnskoðuð án arfgengra augnsjúkdóma (frí) ásamt því að vera DNA-testuð við PRA. Rympa hefur einnig farið í skapgerðarmat sem hún stóðst með mikilli prýði.

Upplýsingar um hvolpana gefur Auður í s: 557-5622 e. kl. 13.00.
Myndir af foreldrunum eru hér  
Myndir af R-goti (sem Rympa er úr)

24/01/2007
 




Tíbrá og Vikki afmæli!!

Finnsku Tíbbarnir okkar þau Tíbrá (ISCH Toyway Ama-Ry-Lix) og Vikki (Toyway Akbar Khan) eiga afmæli í dag! Tíbrá er 2 ára og Vikki er orðinn 7 ára. Til hamingju með afmælin ykkar! :)  

18/01/2007
 




Gleðilegt nýtt ár!!

Við óskum öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir þau gömlu!
Í dag, 1. janúar, á Tamino (INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Tamino) afmæli! Hann er orðinn 9 ára drengurinn. Til hamingju með afmælið Tamino!

Einnig óskum við bræðrum Tamino, þeim Papageno og Sarastro, til hamingju með afmælið!  

Meira um Tamino hér

Á Þorláksmessu, þann 23. desember, átti Tangó (TT Tango For Two) okkar afmæli og varð 5 ára.

Meira um Tangó hér

Mynd: Tamino (2. frá hægri) ásamt foreldrum sínum og bræðrum.

1/01/2007
 




Tamino besti öldungur sýningar!

Haustsýning HRFÍ fór fram 6.-7. október sl. Hápunktur sýningarinnar var þegar Tamino (INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Tamino) var valinn besti öldungur sýningar í yngri öldungaflokki og Ísadóra (Perlu-Lindar Ísadóra) var valin besti hvolpur sýningar í eldri hvolpaflokki! Tíbráar Tinda Labradorum og Tíbet spaniel hundum gekk frábærlega á sýningunni. Tíbráar Tinda Labrador og Tíbet spaniel ræktunahópar voru báðir valdir besti rækt.hópur tegundar með heiðursverðlaun. Úrslit voru sem hér segir:

Tíbet spaniel-dómari Ann Ingram frá Írlandi
Besti rakki 1, BHT BÖT og besti öldungur sýningar INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Tamino
Besta tík 1, BHT 2 með cacib ISCH Toyway Ama-Ry-Lix "Tíbrá"
Besti rakki 2 með cacib ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo
Besti rakki 4 með meistaraefni Tíbráar Tinda Tango For Two
Perlu-Lindar Ísadóra BHvT og besti hvolpur sýningar

Labrador Retriever-dómari Liz Cartledge frá Bretlandi
Besti rakki 1, BHT, meistarastig, cacib 2. sæti í teg.hópi 8 Tíbráar Tinda Skorri (62 Labrador Retriever hundar voru skráðir á sýninguna)

Afghan Hound-dómari Rajko Rotner frá Slóvaníu
Besta tík 1, BHT 2, meistarastig, cacib Punapaulan Yasmin  


Myndir frá sýningunni og fleiri sýningum hér

11/10/2006
 




Tíbrá BEST IN SHOW 2!!

Deildarsýning Terrierdeildar HRFÍ var haldin laugardaginn 9. september sl. Dómari á sýningunni var Cindy Pettersson frá Svíþjóð. Auðvitað nýttum við okkur þetta frábæra tækifæri og skráðum nokkra af Tíbet spaniel hundunum okkar á sýninguna.

Towyay Ama-Ry-Lix "Tíbrá" varð besti hundur tegundar og fékk sitt 3. meistarastig. Hún gerði svo enn betur í úrslitum sýningar og varð 2. besti hundur sýningar! Tíbrá er þá núna orðin íslenskur meistari á aðeins 3 sýningum en á eftir að fá staðfestingu á titlinum frá HRFÍ.
ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo "Fígó" varð besti hundur tegundar 2.
Perlu-Lindar Ísadóra (dóttir Fígós) var valin besti hvolpur tegundar og 2. besti hvolpur sýningar. Bróðir hennar, Perlu-Lindar Jökull var besti hvolpur tegundar 2 með heiðursverðlaun.  


Myndir frá sýningum hér

12/09/2006
 




Fígó 4 ára!!
ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo er 4 ára í dag 30. ágúst! Til hamingju með afmælið litli snúllinn okkar!

Þetta er búið að vera viðburðarríkt ár fyrir Fígó litla en hann varð m.a. pabbi á árinu! Einnig hefur hann verið besti karlhundur tegundar á öllum sýningum HRFÍ á árinu!

Þó hann sé orðinn 4 ára pabbi gefur Florens mamma hans ekkert eftir í uppeldinu og þvær drengnum sínum hátt og lágt á hverjum degi! 30/08/2006
 




Tíbráar Tinda Stóri Hylur leitar að nýjum eiganda!

Hylur, eins og hann er kallaður dags daglega, leitar að nýjum frábærum eigenda og framtíðarheimili. Hann er með frábært skap, elskar að synda og gera eitthvað skemmtilegt!

Hylur er fæddur 17. nóvember 2004.Tilvonandi eigandi þarf að vera tilbúinn til að vinna með hann, fara með hann á námskeið og fleira.

Hylur er gulur, gullfallegur Labrador strákur sem er búinn að fá 1. einkunn á hundasýningu HRFÍ.
Hann er undan gullfallegum verðlaunaforeldrum, ISCH Tíbráar Tinda Karólínu Kátínu og Foxrush Good As Gold (Rush). 
Karólína og Rush eru bæði mjaðma-og olnbogamynduð sem og augnskoðuð+DNA testuð.

Hylur er að leita að nýjum eiganda vegna breyttra aðstæðna. Nánari upplýsingar gefur Auður í s: 557-5622 e. hádegi og á netfanginu tibra@heimsnet.is  

Sjá ættbók og myndir hér


Sjá myndir frá eigendum Tíbráar Tinda hvolpa hér, þ.á.m. Hyl

13/08/2006
 




Nýjar myndir og Perlu-Lindar Ísadóra!

Nýjar myndir af Chelsea

Nýjar myndir af Tíbrá (sýningar og úrslit)

Nýjar myndir af Snerpu (aðsendar myndir frá eigendum)  


Nýja tíkin okkar Perlu-Lindar Ísadóra er komin inn á síðuna. Við eigum hana með Berglindi Björk Jónsdóttur, ræktanda hennar. Síðan hennar er í vinnslu...

14/07/2006
 




Tíbrá BEST IN SHOW!!!!!!

Finnska skvísan okkar hún Tíbrá (Toyway Ama-Ry-Lix) var valin besti hundur sýningar eða BEST IN SHOW á sumarsýningu HRFÍ 24.-25. júní sl. Annika Ultveit Moe frá Svíþjóð dæmdi Tíbet spaniel hundana sem og tegundahóp 9 en Ole Staunskjær frá Danmörku dæmdi keppnina um besta hund sýningar. 


Sonur hans Fígós okkar, hann Perlu-Lindar Jökull, var valinn besti hvolpur sýningar í yngri hvolpaflokki! Dómari var Lis-Beth C Liljeqvist frá Svíþjóð.


Úrslit Tíbet spaniel, dómari Annika Ultveit Moe, Svíþjóð
Perlu-Lindar Jökull - Besti hvolpur tegundar, heiðursverðlaun
Perlu-Lindar Ísadóra - Besti hvolpur tegundar 2, heiðursverðlaun
ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo - Besti rakki, BHT 2
Toyway Ama-Ry-Lix - Besta tík, BHT 1, tegundah. 1. sæti, BEST IN SHOW

Úrslit Afghan Hound, dómari: Richard McCoy, Írlandi
Punapaulan Yasmin Besta tík 2, meistaraefni


Úrslit Labrador Retriever, dómari Richard McCoy, Írlandi
ISCH Tíbráar Tinda Karólína Kátína - Besti öldungur tegundar, besta tík 5

Myndir hér

Sjá önnur úrslit undir sýningar og úrslit

26/06/2006
 




Myndir af hvolpum Tessiear og Fígós!

Núna eru komnar inn myndir af hvolpunum þeirra Tessiear og Fígós! Þeir hafa dafnað mjög vel og eru tæplega 8 vikna í dag. Tessie hefur reynst mjög góð mamma og hugsað vel um litlu gersemin sín.

MYNDIR HÉR  

4/04/2006
 




Hundasýningin 4.-5. mars!

Laugardagur 4. mars

Tíbet Spaniel (Dómari: Rui Oliviera, Portugal)

Toyway Ama-Ry-Lix: Besta tík tegundar, meistarastig, besti hundur tegundar, 2. sæti í tegundahópi 9
ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo: Besti rakki tegundar, CACIB, besti hundur tegundar 2. sæti


Sunnudagur 5. mars


Labrador Retriever (Dómari: Rui Oliviera, Portugal)
Allir Tíbráar Tinda Labradorar fengu 1. einkunn á sýningunni!


Tíbráar Tinda Skorri:
Besti rakki tegundar 2. sæti, CACIB
Tíbráar Tinda Rympa Rós: Besta tík tegundar 2. sæti, meistarastig
Tíbráar Tinda Serena Sól: 1. eink, 2. sæti í ungl.fl. heiðursverðlaun, 5. sæti op.kfl.


Tíbráar Tinda ræktunarhópur, besti ræktunarhópur tegundar
Umsögn dómara: The best quality I found in Iceland!


Afghan Hound (Dómari: Luis Pinto Teixeira, Portugal)
Punapaulan Yasmin: Besta tík tegundar, meistarastig, besti hundur tegundar, 2. sæti í tegundahópi 10  

15/03/2006
 




Fígó orðinn pabbi!!

Fígó (ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo) og Tessie (ISCH Toyway Ca-Isla) eignuðust 2 hvolpa þann 9. febrúar sl. strák og stelpu. Öllum heilsast vel.  Þess má geta að Tessie og Fígó hefur gengið mjög vel á sýningum og hefur Tessie fengið 4 alþjóðleg meistarastig (CACIB).  Eigandi Tessie-ar er Berglind Jónsdóttir og munu hvolparnir hljóta ræktunarnafnið Perlu-Lindar.


Mynd: Tessie með nýfæddum börnunum sínum

12/02/2006
 




Fjóla 12 ára!
Elsta Tíbet spaniel tíkin okkar hún Fjóla er 12 ára gömil í dag! Fjóla er mjög heilsuhraust og er aldur hennar vart sjáanlegur á henni. Til hamingju með afmælið gamlan okkar! :o)

Mynd: Sara Klara, Lilja Rós, Flórens og Fjóla á sumardegi 4/02/2006
 




Vikki og Tíbrá eiga afmæli í dag!!

Tíbbarnir okkar Toyway Akbar Khan "Vikki" og Toyway Ama-Ry-Lix "Tíbrá" eiga afmæli í dag 18. janúar.
Vikki er orðinn 6 ára gamall en Tíbrá er orðin 1 árs. Til hamingju!  


Mynd: Tíbrá 1 árs

18/01/2006
 




Nýjar myndir af Chelsea!

Vorum að bæta við nokkrum nýjum myndum af Chelsea, endilega kíkið hér!  Einnig er FCI Standardinn yfir Afghan Hound kominn á síðuna undir Afghan Hound

9/01/2006
 




Tamino og bræður 8 ára!

Tamino (INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Tamino) og bræður hans, ISCH Tíbráar Tinda Papageno og Tíbráar Tinda Sarastro eru 8 ára gamlir í dag, Nýársdag. Til hamingju með afmælið!Við viljum óska öllum vinum, nær og fjær, tvífættum og ferfættum, gleðilegs árs og þökkum fyrir stundirnar á gamla árinu! 


Mynd: Tamino á góðri stund þegar hann var valinn 3. besti hundur sýningar árið 1999. tæplega eins árs gamall

1/01/2006
 




S-gotið 1 árs í dag!!!

Þau Tíbráar Tinda Serena Sól, Snerpa Sól, Skorri, Sólon Snær, Sambó og Stóri Hylur eru 1 árs í dag, 17. nóvember!


Til hamingju með daginn!!  


 

17/11/2005
 




Tíbráar Tinda ræktun 10 ára í dag!

Tíbráar Tinda ræktunin er 10 ára í dag og þar með fyrsta Tíbet spaniel gotið okkar undir Tíbráar Tinda ræktunarnafninu. Þeir sem fæddust þennan dag fyrir 10 árum eru Flórens, Baltasar og Pablo Picasso "Monsi" :) og eru þau öll mjög hress og bera aldurinn vel! Við óskum eigendum þeirra hjartanalega til hamingju með öldungana sína!  Í dag höfum við ræktað 5 íslenska Tíbet spaniel meistara, þar af 2 alþjóðlega meistara og 1 íslenskan Labrador meistara :) 
Að tilefni afmælisins ákváðum við að fá viðbót í ræktunina okkar, hana Tíbrá :) Toyway Ama-Ry-Lix


Mynd: Balti, Flórens og Monsi 10 vikna  

13/10/2005
 




Tíbrá komin heim!

Tíbet Spaniel tíkin okkar, Toyway Ama-Ry-Lix "Tíbrá", kom úr Hrísey í gærkvöldi. Við erum rosalega ánægð með litlu prinsessuna og hún með okkur :) Hún er búin að vera fljót að aðlagast nýja heimilinu sínu og kemur henni og hundunum mjög vel saman. 


Hérna eru nokkrar myndir af krúttinu  

11/10/2005
 




Haustsýning HRFÍ!

Haustsýning HRFÍ fór fram helgina 1.-2. október sl. og voru Tíbráar Tinda hundar auðvitað mættir á svæðið að venju! Tíbráar Tinda Skorri, 10 mánaða Labradordrengur, gerði sér lítið fyrir og var valinn besti rakki tegundar en 16 rakkar voru skráðir til leiks og þar á meðal pabbi hans, Foxrush Good As Gold. ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo var valinn besti rakki tegundar í Tíbet spaniel.

Úrslit sýningar voru eftirfarandi:

Labrador, dómari: Leif Herman Wilberg, Noregi
Tíbráar Tinda Skorri: Meistarastig, besti rakki tegundar, BHT 2
Tíbráar Tinda Sólon Snær: 1. einkunn ungl.fl., 2. sæti, heiðursverðlaun, 3.sæti op.fl.
Tíbráar Tinda Rökkvi: 1. einkunn op.fl.
Tíbráar Tinda Rómeó Casanova: 1. einkunn op.fl.
Tíbráar Tinda Serena Sól: 1. einkunn, 2. sæti ungl.fl.
Tíbráar Tinda Snerpa Sól: 1. einkunn, 3. sæti ungl.fl.
Tíbráar Tinda Rympa Rós: 1. einkunn op.fl.

Tíbet Spaniel, dómari: Marit Sunde, Noregi
ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo: 1. sæti m.fl. m.efni, BHT 2
INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Tamino: 3. sæti m.fl. m.efni, BH 3, besti öldungur tegundar 1
INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Florens: 2. sæti m.fl. m.efni, BT 3, besti öldungur tegundar 2
ISCH Tíbráar Tinda Papageno: 3. sæti m.fl.

Afghan Hound, dómari: Helge Lie, Noregi
Punapaulan Yasmin: 1.sæti, heiðursverðlaun, besti hvolpur tegundar 1  

Mynd: Auður Sif og Chelsea, besti hvolpur tegundar

5/10/2005
 




Tíbrá komin í Hrísey!

Tíbet Spaniel tíkin okkar hún Tíbrá kom í Hrísey í gær. Hún mun koma til okkar 10. október nk.
Hérna er umfjöllun, myndir og fleira um Tíbrá  

13/09/2005
 




Chelsea komin úr Hrísey!

Afghan tíkin hennar Auðar Sifjar, Chelsea, er komin úr Hrísey! Allt gengur eins og í sögu og kom prinsessan mjög vel úr einangruninni.  


Hérna er umfjöllun, ættbók og myndir af Chelsea

9/09/2005
 




Fígó afmæli!!

Einkasonur Flórensar, ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo á 3ja ára afmæli í dag! :)  
Sjá ættbók, myndir og umfjöllun um Fígó hér

30/08/2005
 




Nýr Tíbráar Tinda meistari!

ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo fékk sitt þriðja og síðasta meistarastig um helgina og er þar af leiðandi orðinn íslenskur meistari eða ISCH. Fígó er sjötti Tíbráar Tinda meistarinn. 
Hann var einnig valinn besti hundur tegundar á Deildarsýningu Terrierdeildar HRFÍ þar sem tegundahópar 3,9 og 10 tóku þátt og endaði sem fjórði besti hundur sýningar.

Önnur úrslit voru:
Tíbráar Tinda Tango For Two: 1. einkunn op.fl, 2. sæti
Toyway Akbar Khan: 1. einkunn op.fl, 3. sæti

Dómari: Henrik Johanson, Svíþjóð

29/08/2005
 




Tíbráar Tinda Rympa Rós - Mjaðma-og olnboganiðurstöður!

Labradortíkin Rympa Rós fór í mjaðma-og olnbogamyndatöku á dögunum og niðurstöðurnar voru ánægjulegar :)
HD: A
AA: A


  

14/08/2005
 



Chelsea komin í Hrísey!

Afghan Hound tíkin hennar Auðar Sifjar, Chelsea, kom í Hrísey 10. ágúst sl. og kemur til okkar 7. september nk. Auður Sif var í Finnlandi í 6 vikur til að umhverfisþjálfa hana og búa hana undir dvölina í Hrísey.


Nokkrar nýjar myndir af prinsessunni á síðunni hennar hér  

14/08/2005
 




Nýjar myndir af Tíbrá!

Við skelltum okkur til Finnlands í júlí til að skoða nýju Tíbba-skvísuna okkar hana Tíbrá.


Við urðum sko ekki fyrir vonbrigðum enda ein fallegasta og yndislegasta tík sem við höfum augum litið!


Tíbrá kemur í Hrísey í september nk.


Kíkið inn á síðuna hennar til að sjá nýjar myndir.  

14/08/2005
 




Sumarsýning HRFÍ 2005!

Sumarsýning HRFÍ var haldin 24.-26. júni sl. Tíbráar Tinda Labrador hvolparnir hennar Karólínu (S got)voru allir sýndir og gekk frábærlega! Fjórir hvolpar af sjö fengu heiðursverðlaun. TT Skorri og TT Snerpa Sól voru bestu hvolpar tegundar 1 og 2. Skorri gerði svo enn betur og varð fjórði besti hvolpur sýningar af 16 tegundum!  Pabbi hvolpanna, Foxrush Good as Goldvar besti hundur tegundar og lenti í 2. sæti í tegundahópi 8.   Einnig voru sýndir 3 Tíbráar Tinda Labradorar í "fullorðinsflokki" á laugardeginum. TT Karólína Katína fékk sitt 3. meistarastig og er þar með orðin íslenskur meistari! :) Þess má geta að hún er fyrsti Tíbráar Tinda Labradorinn til að verða meistari. TT Rökkvi fékk sitt fyrsta meistarastig :)   Dómari var Karl Erik Johanson frá Svíþjóð.  Sjá myndir frá sýningarþjálfun og af sýningunni hér


Árangur Tíbráar Tinda hunda var eftirfarandi:


Labrador:

TT Karólína Kátína: Besta tík tegundar, meistarastig, BHT2
TT Rympa Rós: Besta tík tegundar 3. sæti, meistaraefni
TT Rökkvi: Besti rakki 2. sæti, meistarastig

Labrador hvolpar:

TT Skorri: 1. sæti, heiðursverðlaun, BHvT 1 BESTI HVOLPUR SÝNINGAR 4. SÆTI
TT Sólon Snær: 2. sæti, heiðursverðlaun
TT Stóri Hylur: 3. sæti, heiðursverðlaun
TT Snerpa Sól: 1. sæti, heiðursverðlaun, BHvT2
TT Serena Sól: 2. sæti

Tíbet Spaniel:

TT Un Bel Figo: Besti rakki 3. sæti, meistaraefni
Toyway Akbar Khan: 1. einkunn, 3. sæti op.fl.


Mynd: TT Skorri og TT Snerpa Sól voru valin bestu hvolpar tegundar 1 og 2

28/06/2005
 




Nýjar myndir af Tíbrá!

Við fengum sendar nýjar myndir af henni Tíbrá okkar fyrir stuttu og verður að segjast að við urðum ekki fyrir vonbriðgum með prinsessuna okkar. Endilega kíkið á síðuna hennar hér!  

11/06/2005
 




Tíbráar Tinda Regína Rós með 1. einkunn á veiðiprófi!

Labradorinn, Regína Rós, tók þátt í sínu fyrsta veiðiprófi 21. maí sl.  Hún var prófuð í byrjendaflokki og stóð sig frábærlega með 1. einkunn! :)  Glæsilegt!  Við óskum stoltum eigendum hennar, Baldri og Þóru, til hamingju með veiðihundinn sinn! :) 

9/06/2005
 



Punapaulan Yasmin!

Dóttir okkar, Auður Sif, er að fara að flytja inn Afghan tík frá Riittu Aho (Punapaulan ræktun) í Finnlandi. Tíkin heitir Punapaulan Yasmin og verður kölluð Chelsea :)


Sjá umfjöllun og myndir um Chelsea hér  

16/05/2005
 




Karólína og bræður hennar 6 ára!

Karólína Kátína og bræður hennar Tíbráar Tinda Kormákur Korfi og Kristófer Kuggur urðu 6 ára á föstudaginn þrettánda!!! :) Sjá myndir af þeim  

15/05/2005
 



Toyway Ama-Ry-Lix!

Tíbrá (Toyway Ama-Ry-Lix) er væntanleg til landsins nk. haust! Tíbrá, er Tíbet Spaniel tík, sem kemur frá Jouko Leivikskä, Finnlandi. Hún er að sjálfsögðu mjög vel ættuð, með mjög spennandi ættbók.


Síða Tíbráar undir "hundarnir okkar"  

11/05/2005
 




Aðsendar myndir frá eigendum!

Eigendur hvolpanna okkar eru duglegir að leyfa okkur að fylgjast með og senda okkur myndir af gersemunum sínum :)


Nýjar myndir frá eigendum


Nýjar myndir frá hvolpaskólanum  

11/05/2005
 




Afmælissýning Cavalier-deildar!

10 ára afmælissýning Cavalier-deildar HRFÍ var haldin helgina 7.-8. maí sl. Öllum tegundum úr tegundahópi 9 var boðið að taka þátt á sunnudeginum. Við sýndum 3 Tíbet Spaniel hunda í okkar eigu og gekk þeim alveg ljómandi vel!


Toyway Akbar Khan: 1.einkunn, 2. sæti op.fl., meistaraefni og BH 2                                         


TT Un Bel Figo: 1.einkunn,3.sæti op.fl., meistaraefni og BH 3                                            


INTUSCH ISCH Tíbráar Tinda Florens: 2.sæti meistarafl. meistaraefni, BT 3 Besti öldungur tegundar 1. sæti og Besti öldungur sýningar 3. sæti


Berglind, dóttir okkar, dæmdi unga sýnendur á sýningunni.  Þetta er í annað sinn sem hún fær þann heiður að vera boðið að dæma unga sýnendur á Íslandi :)


Mynd: INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Florens besti öldungur sýningar 3. sæti  

11/05/2005
 




Augnskoðun!
Tíbráar Tinda Karólína Kátína, TT Un Bel Figo, TT Tango For Two og Toyway Akbar Khan voru augnskoðuð 6. maí sl. Allir reyndust án arfgengra augnsjúkdóma :) 11/05/2005
 



Hvolpaskóli!

Hvolparnir úr "S" goti Karólínu eru á hvolpanámkeiði um þessar mundir. En það eru þau Sambó, Skorri, Sólon, Serena Sól og Snerpa Sól. Stóri Hylur var á námskeiði í Keflavík og Seifur byrjar á námskeiði 22. apríl á Neskaupstað, þar sem hann býr. Allir þessir hvolpar eru á námskeiði á vegum hundaskóla HRFÍ.  Sjá myndir frá hvolpaskólanum hér!   Þess má geta að hvolparnir eiga 5 mánaða afmæli í dag :)  Til hamingju!


Einnig er búið að bæta við fleirum myndum í "aðsendar myndir frá eigendum" sjá hér!

17/04/2005
 




Sýningin 5. mars!

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ fór fram 4.-6. mars sl. og gekk vel hjá Tíbráar Tinda hundum. ISCH Nalinas Morchella De´Adonis "Fjóla" 11 ára var besti öldungur tegundar, en hún vann son sinn, INT UCH ISCH Tíbráar Tinda Tamino í keppninni um besta öldung tegundar. Fjóla var jafnframt besta tík tegundar 3.  Önnur úrslit voru:


Tíbet Spaniel-dómari Diane T. Anderson frá USA


INT USC ISCH TT Tamino 1. sæti m.fl, m.efni, BR 2 BÖT 2


TT Tango For Two 1. einkunn, 2. sæti, m.efni og BR 4


TT Un Bel Figo 1. einkunn, 3. sæti, m.efni og BR 5


Tíbráar Tinda ræktunarhópur fékk svo 1. einkunn og heiðursverðlaun og var besti ræktunarhópur tegundar og annar besti ræktunarhópur dagsins (sjá umsögn dómara hér)


Labrador Retriever-dómari Moa Person frá Svíþjóð


TT Rympa Rós 1. einkunn, 1. sæti uh.fl, hv, 3. sæti op.fl.


TT Regína Rós 1. einkunn, 5. sæti uh.fl.


TT Rökkvi 1. einkunn uh.fl.


Mynd: TT Regína Rós og Þorbjörg Ásta sýnandi hennar

18/03/2005
 




Nýjar myndir!

Eigendur hvolpanna hennar Karólínu hafa verið duglegir að senda okkur myndir af gersemunum sínum.


Endilega kíkið á myndirnar :) HÉR  

21/02/2005
 




Fjóla á 11 ára afmæli í dag!

ISCH Nalinas Morchella De´Adonis "Fjóla" er 11 ára í dag. Fjóla er fyrsti Tíbet Spaniel hundurinn okkar. Hún var flutt inn frá Svíþjóð og hefur eignast 3 got.


Toyway Akbar Khan "Vikki" okkar átti afmæli 18. janúar sl. og varð 5 ára. Hann er innfluttur frá Finnlandi og er pabbi drengjanna okkar Tangós og Fígós.


Mynd: Fjóla nýkomin til Íslands 1994  

4/02/2005
 




Allir hvolparnir komnir á ný heimili!

Nú eru allir hvolparnir búnir að fá nýja og frábæra eigendur. Fyrstu tveir fóru að heiman 15. janúar og sá síðasti 29. janúar.  Við settum inn nýjar myndir af þeim og fjölskyldum þeirra (Sjá hér)


Til hamingju með nýju fjölskyldumeðlimina! :) Vonandi gengur allt sem best!

30/01/2005
 




Nýjar myndir af hvolpunum!

Nýjar myndir af hvolpunum voru settar inn í dag. 


Sjá nýjar myndir hér


Sjá ættbók og eldri myndir hér


 

9/01/2005
 




INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino 7 ára í dag...!

INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino, ISCH TT Papageno og TT Sarastro eru 7 ára í dag og þar með orðnir öldungar!  Til hamingju :)


Þann 23. desember átti jólastrákurinn okkar, TT Tango For Two, 3 ára afmæli. 


Mynd: TT Tango For Two

1/01/2005
 




Loksins nýjar myndir!!

Við óskum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári! 


Hvolparnir hennar Karólínu eru orðnir 6 vikna gamlir.  Loksins gátum við sett inn nýjar myndir af hvolpunum en myndaforritið var búið að vera að stríða okkur undanfarinn mánuð! 


Nýjar myndir hér!

31/12/2004
 




Nýjar myndir af hvolpunum hennar Karólínu!

Núna eru hvolparnir orðnir næstum 2 vikna og allt hefur gengið að óskum hingað til. Allir þyngjast mjög vel og allir eru þeir algjörar bollur! Það styttist í að þeir fari að opna augun en það gæti þess vegna gerst í dag eða á morgun. Endilega kíkið á myndirnar hér!  

30/11/2004
 




INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino!

Tamino hefur fengið staðfestingu frá FCI um alþjóðlegan meistaratitil!  


Sjá nánar um Tamino hér


Sjá nánar sýningaárangur Taminos hér

22/11/2004
 




7 Labrador hvolpar fæddir!

Tíbráar Tinda Karólína Kátína eignaðist í gær, 17. nóvember, 7 hvolpa. 4 gula stráka, 1 svartan strák og 2 svartar stelpur. Móður og hvolpum heilsast vel.Stoltur faðir þeirra er Foxrush Good As Gold.  


Sjá myndir og ættbók gotsins

18/11/2004
 




Augnskoðun!

Augnskoðun fór fram 12. og 13. nóvember sl. Labrador hundarnir Tíbráar Tinda Rökkvi, Rómeó Casanova og Rympa Rós voru augnskoðuð og reyndust þau öll án arfgengra augnsjúkdóma.Tíbet Spaniel hundurinn ISCH Tíbráar Tinda Tamino var einnig augnskoðaður og án arfgengra augnsjúkdóma. 


Tíbráar Tinda Rúfuz Argus var mjaðma-og olnbogamyndaður fyrir stuttu. Niðurstöðurnar eru HD= Fri og AA=Svag  

18/11/2004
 




Tíbráar Tinda Ringó dáinn!
Sá hörmulegi atburður átti sér stað í Borgarfirðinum að Ringó varð fyrir bíl og lést 9. nóvember sl.

Innilegar samúðarkveðjur til eigenda hans, Steinars Bergs, Ingibjargar og fjölskyldu. 18/11/2004
 



Tíbráar Tinda Labrador Retriever hvolpar væntanlegir!

Labrador tíkin okkar Tíbráar Tinda Karólína Kátína (svört) á von á hvolpum um miðjan nóvember. Pabbi hvolpanna er Foxrush Good As Gold "Rush" (gulur). Þau eru bæði HD (mjaðma) og AA (olnboga) mynduð og eru frí. Þau eru einnig augnskoðuð og eru án arfgengra augnsjúkdóma. Þau hafa bæði verið sýnd á ræktunarsýningum HRFÍ með frábærum árangri. Karólína hefur líka fengið 1. einkunn í opnum flokki á Retriever veiðiprófi.  


Sjá nánar um Karólínu


Sjá sýningar-og veiðiprófsárangur Karólínu

26/10/2004
 




Tíbráar Tinda ræktun 9 ára í dag!!

Tíbráar Tinda ræktun er 9 ára í dag. Fyrsta gotið okkar undir Tíbráar Tinda ræktunarnafninu var af tegundinni Tíbet Spaniel og var fætt 13. október 1995. Það var tíkin okkar INT CH ISCH Tíbráar Tinda Florens ásamt bræðrum sínum þeim ISCH TT Baltasar og TT Pablo Picasso "Monzi". Þau eru öll hress og kát og bera aldur sinn vel. Það eru einnig foreldrar þeirra, þau ISCH Nalinas Morchella De´Adonis "Fjóla" og ISCH Nalinas Nooni "Nonni". Til hamingju með daginn! Sjá nánar gotið hér  


Myndatexti: Monzi, Florens, Fjóla (mamma) og Balti á 1 árs afmælinu

13/10/2004
 




Toway Akbar Khan 2. besti hundur tegundar!

Tíbet Spaniel hundurinn okkar, Toyway Akbar Khan "Vikki", var valinn besti rakki tegundar og varð svo í 2. sæti um besta hund tegundar á alþjóðlegri sýningu HRFÍ þann 3. október sl.


Vikki fékk einnig sitt annað meistarastig og sitt fyrsta alþjóðlega meistarastig (CACIB).  Besti hundur tegundar var tíkin ISCH Toyway Ca-Isla (Tessie).  Tíbet Spaniel strákarnir okkar, þeir TT Un Bel Figo og TT Tango For Two voru einnig sýndir ásamt ISCH TT Papageno.                   


Árangur þeirra varð sem hér segir:


TT Un Bel Figo: 1. einkunn, 2. sæti í opnum  flokki                


TT Tango For Two: 1. einkunn, 3. sæti í opnum flokki  


ISCH TT Papageno: Besti rakki tegundar 2. sæti, V-CACIB


Dómari: Solie Bister frá Finnlandi.


Labrador tíkin okkar, TT Karólína Kátína fékk 1. einkunn og 4. sæti í opnum flokki. 


Dómari: Tore Fossum frá Noregi.


 

6/10/2004
 




3 myndaðir - 3 fríir!

Nú hafa Labrador hvolparnir þeirra Karólínu og Úlla, TT Rómeó Casanova, Rökkvi og Regína Rós verið mjaðma og olnbogamynduð. Niðurstöðurnar voru þær að öll voru þau HD = Fri og AA = Fri!  

24/09/2004
 




Tíbráar Tinda Un Bel Figo 2 ára í dag!!!

Litli Tíbba-prinsinn okkar hann Fígó er 2 ára í dag!! :o)  

30/08/2004
 




Tíbráar Tinda Rökkvi HD og AA frír!

Labrador hundurinn Tíbráar Tinda Rökkvi var mjaðma-og olnboga myndaður fyrr í sumar.  Niðurstöður urðu þær að Rökkvi reyndist HD = A (frír) og AA = A (frír).  Við erum auðvitað himinlifandi yfir þessum góðu fréttum!  

30/08/2004
 



Auður Sif sýnir Toyway Talika!

Auður Sif sýndi Tíbetan Spaniel hvolpinn, Toyway Talika "Gloriu" á sýningunni í Kuopio, Finnlandi í 6. ágúst.  Sýningin var Tibetan Spaniel speciality sýning og voru hátt í 100 hundar sýndir.  Talika var sýnd í hvolpaflokki og varð besti hvolpur sýningar!  Eigandi hennar er Jouko Leiviskä, Toyway Kennel.

30/08/2004
 




Auður Sif dæmir unga sýnendur í Ronneby, Svíþjóð!

Auði Sif var boðið að dæma keppni ungra sýnenda í Ronnby þann 29. júlí sl.  Alls var 51 keppandi skráður til leiks.  Það gekk vonum framar og fékk hún mikið lof fyrir störf sín.  Sýningarnar voru alls fjórar, frá 29. júlí til 1. ágúst.  Sigurvegarinn var 17 ára stúlka, Pernilla Sandström sem sýndi Pýreneahund.     

30/08/2004
 




Auður Sif heimsækir pabba hans Vikka (Toyway Akbar Khan)!

Auður Sif heimsótti pabba hans Vikka okkar (Toyway Akbar Khan) um daginn en eigendur hans eiga heima í Haukipudas, nálaegt Oulu, þar sem hún dvelur í sumar.  Pabbi hans heitir CH Rhengold´s Intervall.   

15/07/2004
 




Auður Sif á sýningu í Svíþjóð!

Auður Sif er búin ad vera á 3 sýningum undanfarið í Finnlandi og Svíþjóð. Hún hefur verid ad sýna Afghan hundinn, FIN & S & N & EST Ch. Punapaulan Mahti sem er í eigu Riittu Aho, ræktandans sem hún er ad vinna hjá í sumar.  Á alþjóðlegri sýningu í Piteå í Svíþjóð 3. júlí sl. var Mahti besti hundur tegundar med CACIB (sitt þriðja) og varð svo í 2. sæti í tegundahóp 10.  Frábær árangur!


>> Sjá fleiri myndir hér

15/07/2004
 




Sumarsýning HRFÍ!

Sumarsýning HRFÍ var haldin 25. - 27. júní s.l. Við sýndum Labrador Retriever tíkurnar Karólínu og Rympu Rós og Tíbet Spaniel hundana Figo, Tangó og Vikka. Aðrir sem sýndir voru úr Tíbráar Tinda ræktun voru Labrador Retriever tíkin Regína Rós og Tíbet Spaniel hundurinn Papageno. Árangur þeirra var eftirfarandi:


Labrador Retriever:
Tíbráar Tinda Regína Rós - 1. eink., 1. sæti, hv, unghundaflokki.
Tíbráar Tinda Rympa Rós - 1. eink., 2. sæti, unghundaflokki.
Tíbráar Tinda Karólína Kátína - 1. eink., 3. sæti opnum flokki.


Tíbet Spaniel:
Tíbráar Tinda Un Bel Figo - 1. eink., 1. sæti, hv, unghundaflokki. 1. sæti opnum flokki, m.stig, BH1 og Besti hundur tegundar 1.
Tíbráar Tinda Tango For Two - 1. eink., 4. sæti opnum flokki.
ISCH Tíbráar Tinda Papageno - 1. sæti meistaraflokk, m.efni, BH3.
Toyway Akbar Khan (Vikki) - 1. eink., 2. sæti opnum flokki, m.efni, BH4.  

7/07/2004
 




Tíbetan Spaniel fólk í Finnlandi hittist!

Audur Sif, sem núna er stödd í Oulu, Finnlandi, fór tann 16. júní í Tíbetan Spaniel sýningartjálfun og grill ásamt Jouko Leiviskä og konunni hans henni Raiju.  Hátt í 20 hundar komu og áttu hundarnir og eigendur teirra skemmtilega stund saman.  Hér má sjá myndir frá kvöldinu! 

17/06/2004
 




Skapgerðarmat!

Ástrós fór með Tíbráar Tinda Rympu Rós (L.R.) í skapgerðarmat (Mentaltest) 4. júní sem hún kláraði með góðum árangri. Til hamingju báðar.  

5/06/2004
 



Karólína og bræður 5 ára!!

Karólína Kátína og bræður hennar, Korfi og Krissi, eru 5 ára í dag, 13. maí!  Til hamingju! 

13/05/2004
 




Heimasíðan tilbúin! Bæði á íslensku og ensku!!

Heimasíðan er nú tilbúin, bæði á íslensku og ensku. 

Við þökkum henni Önnu Björgu Kristinsdóttur heimasíðu hönnuði hjartanlega fyrir frábærlega vel unnið verk! 

13/05/2004
 



Augnskoðun!

Augnskoðun var í gær, 8. maí.  Að þessu sinni létum við augnskoða Karólínu, Vikka, Tangó og Fígó.  Allir reyndust þeir án arfgengra augnsjúkdóma.  Við höfum fréttir af því að labbarnir Regína Rós og Kormákur Korfi sem bæði eru úr okkar ræktun, komu vel út úr augnskoðuninni og eru án arfgengra augnsjúkdóma.

9/05/2004
 



Tíbráar Tinda labradorar fara á kostum!!

Tíbráar Tinda Regína Rós og Rómeó Casanova hafa verið á Retrievernámskeiði í vetur.  Námskeiðið endaði með prófi sem þau stóðu sig frábærlega í.  Regína fékk 100 stig af 100 mögulegum.  Við fréttum að þetta væri í fyrsta skipti sem hundur á Retrievernámskeiði HRFÍ fengi fullt hús stiga.  Við óskum eigendum þeirra hjartanlega til hamingju með frábæran árangur og erum ekkert smá stolt af þeim! 

9/05/2004
 



Smáhundakynning í Garðheimum!

Smáhundakynning var í Garðheimum 20.-21. mars sl.  Okkur var boðið að koma og kynna Tíbet Spaniel og þáðum við það með þökkum enda mjög skemmtilegt að fá tækifæri til að kynna tegundina sína.  Flórens, Tangó og Fígó voru "kynningarhundar" báða dagana og stóðu sig í alla staði vel og voru frábær kynning fyrir tegundina! 

9/05/2004
 




Auði Sif boðið að dæma í Svíþjóð!!

Auði Sif hefur verið boðið að dæma keppni ungra sýnenda á alþjóðlegri 4 daga sýningu í Ronneby, Svíþjóð þann 29. júlí nk. 

2/05/2004
 



Auður Sif til Finnlands!

Auður Sif er á leiðinni til Finnlands ásamt Ástu Maríu vinkonu sinni til að vinna hjá einum virtasta Afghan og Toy Poodle ræktandanum þar í landi.  Þetta mun verða þeim mikil reynsla en ásamt þvi að hjálpa til við dagleg störf munu þær fara á margar hundasýningar og sýna.  Ásta María stefnir á að verða hundasnyrtir í framtíðinni og því verður þetta upplagt tækifæri fyrir hana því að Afghan og Toy Poodle hundar þarfnast mikillar feldhirðu.  Auður Sif mun vera í Finnlandi í sumar í 2 og hálfan mánuð.  Hér má sjá heimasíðu ræktandans.

2/05/2004
 



Alþjóðleg sýning mars 2004!

Alþjóðleg sýning HRFÍ var haldin í Kópavogi 6.-7. mars sl.  Við sýndum nokkra af hundunum okkar og gekk þeim öllum mjög vel.  Einnig voru sýndir hundar úr Tíbráar Tinda ræktun og gekk þeim vel og fengu allir 1. einkunn. 


ISCH Tíbráar Tinda Tamino fékk sitt 4. CACIB og er þess vegna búinn að fá það sem til þarf til að verða Alþjóðlegur meistari INTUCH.  Hann bíður þess að fá staðfestingu FCI á titlinum.  Tamino var BHT 1.  TT Un Bel Figo fékk sitt fyrsta meistarastig og varð BH 3.


Sjá má árangur hundanna okkar á sýningum HRFÍ í sýningar og úrslit  

2/05/2004
 




Eldri fréttir

Allur réttur áskilinn © Auður Valgeirsdóttir -
Sendu okkur tölvupóst
Hönnun - Anja Björg Kristinsdóttir.