|
|
| Afghan Hound |
| Fjölskyldan |
| Gestabók |
| Heilsufar |
| Hundarnir okkar |
| Hvolpar-Got |
| Labrador Retriever |
| Myndir |
| Ræktunin |
| Sagan |
| Sýningar og úrslit |
| Tenglar |
| Tibetan Spaniel |
| Tíbráar Tinda meistarar |
| Ungir sýnendur |

 
Hundarnir
okkar eru fóðraðir á

|
| |
|
Sumarsýning HRFÍ!
Sumarsýning HRFÍ var haldin helgina 27.-28. júní sl. í reiðhöllinni í Víðidal.
Okkar hundum gekk frábærlega og voru úrslitin eftirfarandi: Laugardagur:
Labrador retriever - dómari Svein Helgesen frá Noregi
Tíbráar Tinda Tígurinn Tumi: excellent, 3. sæti op.fl. Tíbráar Tinda Serena Sól: excllent, 3. sæti op.fl. Tíbráar Tinda Töfrandi Lóla: excellent
Afghan Hound - dómari Tamas Jakkel frá Ungverjalandi
Affietude King of Pride Rock: BOB, BIG 3 Affietude Hakuna Matata: excellent, 3. sæti ungl.fl. C.I.B. ISCH Punapaulan Yasmin: BT 3
Sunnudagur: Tíbet spaniel - dómari Christine Roussier frá Sviss
C.I.B. ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo: BR 2 C.I.B. ISCH Tíbráar Tinda Tamino: BR 4, BOB öldungur C.I.B. ISCH Toyway Ama-Ry-Lix: BOS ISCH Perlu-Lindar Ísadóra: BT 2
Innilegar hamingjuóskir til Berglindar og Sigurðar (Perlu-Lindar ræktun) með frábæran árangur á sýningunni! Perlu-Lindar Mikki Snær: BOB Perlu-Lindar Frosti: BR 3
Fígó var sýndur með afkvæmum sínum og urðu þau 2. besti afkvæmahópur dagsins! Perlu-Lindar ræktunarhópur var 4. besti ræktunarhópur dagsins!
Mynd: Fígó ásamt afkvæmum sínum. 30/06/2009
|
|
Nýr alþjóðlegur meistari!
Afghan tíkin C.I.B. ISCH Punapaulan Yasmin fékk á dögunum alþjóðlegan sýningartitil sinn staðfestan frá FCI.
Við óskum Auði Sif innilega til hamingju með prinsessuna sína!
16/06/2009
|
|
Tíbrá hvolpafull!
Fegurðardísin okkar C.I.B. ISCH Toyway Ama-Ry-Lix "Tíbrá" var á dögunum pöruð með prinsinum okkar C.I.B. ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo og vonumst við eftir hvolpum í enda júlí.
Mynd: Tíbrá í júní ´09
16/06/2009
|
|
Fyrsta got Osku á Íslandi!
Flotti Labbastrákurinn okkar hann Osku (Talimar Mallorns Storm Warning) eignaðist sitt fyrsta got á Íslandi þann 7. maí sl. 4 stelpur og 2 stráka en allir hvolparnir eru svartir.
Stolt móðir hvolpanna er Bláskóga Selja sem er í eigu Guðsteins Eyjólfssonar sem einnig er ræktandi hvolpanna.
Mynd: Osku-synir 4 vikna :) 16/06/2009
|
|
Hvíl í friði elsku Úlli!
Vorið hefur verið erfitt fyrir okkur mennina þar sem við höfum þurft að kveðja nokkra af okkar bestu vinum.
Pabbi Tíbráar Tinda S-gotsins, Nord Ch ISCH DKCH SU(u)CH Uncle Tom of Brownback Cottage "Úlli", fékk að sofna svefninum langa rúmlega 12 og hálfs árs gamall. Úlla verður sárt saknað.Okkar dýpstu samúðarkveðjur til Guðsteins, Margrétar og fjölskyldu. 16/06/2009
|
Heilsufarsfréttir!
Við fengum þær frábæru fréttir á dögunum að systkinin Tíbráar Tinda Töfrandi Lóla og Tígurinn Tumi væru bæði með A í mjöðmum og A í olnbogum! Svo sannarlega góðar fréttir. Þess má geta að Lóla og Tumi eru bæði dna-prófuð við PRA og eru normal/clear.
Labrador hundarnir Lóla og Osku og Tíbet spaniel hundarnir Vikki og Fígó voru augnskoðaðir í maí sl. og voru öll án arfgengra augnsjúkdóma. 16/06/2009
|
|
C.I.B. ISCH Tíbráar Tinda Florens 13.10.1995 - 6.5.2009!
Elsku prinsessan okkar hún Flórens kvaddi þennan heim 6. maí sl. og er hennar sárt saknað.
Þótt Flórens hafi verið lítil dama hafði hún að geyma einn þann stærsta og skemmtilegasta persónuleika sem við höfum nokkru sinni fengið að kynnast.
Hún mun alltaf eiga risastóran stað í hjörtum okkar allra og minnumst við litlu dívunnar okkar á hverjum degi. Hvíl í friði elsku Flórens okkar...þín er sárt saknað.
Mynd: Prinsessan okkar á páskunum ´09 16/06/2009
|
|
Hvíl í friði Tíbráar Tinda Snerpa Sól!
Tíbráar Tinda Snerpa Sól kvaddi þennan heim í apríl sl. Snerpa Sól var yndisleg tík og átti frábæra fjölskyldu sem hugsaði svo vel um hana.
Okkar dýpstu samúðarkveðjur til Guðrúnar Olsen og fjölskyldu. Hvíl í friði elsku Snerpa Sól.
Mynd: Snerpa Sól sem hvolpur 16/06/2009
|
|
Tamino besti öldungur sýningar 2, Tíbrá BOB og Ísadóra nýr íslenskur meistari!
Alþjóðleg vorsýning HRFÍ var haldin helgina 28. febrúar til 1. mars sl. og var metþátttaka á sýningunni.
Tíbbarnir voru skráðir til leiks fyrri dag sýningarinnar undir dómaranum Seamus Oates frá Írlandi.
Úrslit voru: INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix: BOB, tegundahópur 3. sæti Perlu-Lindar Ísadóra: Besta tík 2, m.stig (nýr ísl.meistari), res-cacib INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino: Besti rakki 2, BOB öldungur, besti öldungur sýningar 2 INT CH ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo: Besti rakki 3
Við óskum Berglindi og Sigurði hjá Perlu-Lindar ræktun innilega til hamingju með Perlu-Lindar Ísadóru og Perlu-Lindar Jökul sem var BOS og fékk sitt annað meistarastig og fyrsta cacib á sýningunni! Einnig gerðu Perlu-Lindar hvolpar, synir Fígós okkar, það gott á sýningunni og fengu báðir heiðursverðlaun!
Labradorar voru skráðir til leiks á sunnudeginum og var dómari Torunn Sörbye frá Noregi. Úrslit voru: Talimar Mallorns Storm Warning "Osku": Excellent, 4. sæti opinn flokkur, CK Tíbráar Tinda Töfrandi Lóla: Excellent, 4. sæti opinn flokkur Tíbráar Tinda Serena Sól: Excellent
Við óskum Guðsteini Eyjólfssyni, meðeiganda Osku, innilega til hamingju með Bláskóga Selju sem endaði sem BOS á sýningunni!
Afghanar voru sýndir á sunnudeginum og var Chelsea (New INT CH ISCH Punapaulan Yasmin) BOB og í 2. sæti í tegundahópi 10! Affietude Afghanar voru einnig skráðir til leiks og stóðu sig frábærlega og fengu þau öll meistaraefni. Affietude ræktunarhópurinn var svo í 2. sæti um besta ræktunarhóp sunnudagsins! Hamingjuóskir til Auðar Sifjar okkar með frábæran árangur!
Mynd: Auður Sif og Tíbrá BOB Johan Fryck-Mayer 13/03/2009
|
|
Flottustu voffarnir :)!
Það er gaman að segja frá því að Tíbet spaniel tíkin Tíbrá (INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix) og Labrador tíkin Serena Sól (Tíbráar Tinda Serena Sól) enduðu í 11. sæti á lista HRFÍ yfir stigahæstu hunda ársins 2008! Þær voru jafnframt stigahæstu hundar sinnar tegundar!
11 ára kóngurinn okkar, Tíbet spaniel hundurinn Tamino (INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino) endaði sem 5. stigahæsti öldungur ársins skv. lista HRFÍ!
Tíbet spaniel hundurinn okkar hann Fígó (INT CH ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo) endaði sem stigahæsti Tíbet spaniel rakkinn 2008. Hann fékk alþjóðlega titilinn sinn staðfestan frá FCI á síðasta ári.
Mynd: Serena og Auður Sif í úrslitum í tegundahópi á haustsýningu HRFÍ 2008 þar sem Serena endaði í 3. sæti
19/02/2009
|
|
Fjóla okkar er 15 ára í dag!
Okkar elskulega Fjóla (ISCH Nalinas Morchella De´Adonis) er 15 ára í dag!
Fjóla er fyrsti Tíbbinn okkar og var innflutt frá Svíþjóð árið 1994.
Hún hefur eignast þrjú got og gefið af sér yndisleg, falleg afkvæmi. Þau eru m.a. INT CH ISCH Tíbráar Tinda Florens, ISCH Tíbráar Tinda Baltasar, INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino, ISCH Tíbráar Tinda Papageno og ISCH Tíbráar Tinda Tango for Two.
Við óskum drottningunni okkar innilega til hamingju með öll þessi ár! 4/02/2009
|
Chelsea 4 ára!
Prinsessan okkar hún Chelsea (ISCH Punapaulan Yasmin) er 4 ára í dag. Til hamingju með afmælið!
26/01/2009
|
|
Afmælisbörn dagsins: Vikki og Tíbrá!
Við óskum afmælisbörnum dagsins, Finnunum okkar þeim Vikka og Tíbrá, innilega til hamingju með daginn!
Vikki er orðinn 9 ára og Tíbrá 4 ára :)
Mynd: Tíbrá afmælisstelpa 18/01/2009
|
|
Gleðilegt ár! Tamino 11 ára í dag!
Við óskum öllum vinum okkar, nær og fjær, gleðilegs árs!
Kóngurinn okkar, INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino, er 11 ára í dag, Nýársdag. Til hamingju með afmælið elsku Tamminn okkar!
1/01/2009
|
|
Jólakveðja!
Við óskum ykkur öllum, nær og fjær, gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.
Þökkum allt liðið!
Jólakveðja, Auður, Geiri, Auður Sif og voffarnir. 25/12/2008
|
|
|
|