|
|
| Afghan Hound |
| Fjölskyldan |
| Gestabók |
| Heilsufar |
| Hundarnir okkar |
| Hvolpar-Got |
| Labrador Retriever |
| Myndir |
| Ræktunin |
| Sagan |
| Sýningar og úrslit |
| Tenglar |
| Tibetan Spaniel |
| Tíbráar Tinda meistarar |
| Ungir sýnendur |

 
Hundarnir
okkar eru fóðraðir á

|
| |
|
Gleðilegt ár! Tamino 11 ára í dag!
Við óskum öllum vinum okkar, nær og fjær, gleðilegs árs!
Kóngurinn okkar, INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino, er 11 ára í dag, Nýársdag. Til hamingju með afmælið elsku Tamminn okkar!
1/01/2009
|
|
Jólakveðja!
Við óskum ykkur öllum, nær og fjær, gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.
Þökkum allt liðið!
Jólakveðja, Auður, Geiri, Auður Sif og voffarnir. 25/12/2008
|
|
Til hamingju með afmælið Tangó!
Tangó okkar varð 7 ára þann 23. desember sl.
Til hamingju með afmælið prinsinn okkar! 25/12/2008
|
Nýr Labrador-strákur!
Við bjóðum Osku velkominn til landsins!
Talimar Mallons Storm Warning eða Osku, eins og hann er kallaður, kom til okkar í gær, 20. nóvember.
Hann er í eigu Auðar Valgeirsdóttur og Guðsteins Eyjólfssonar en mun búa í góðu yfirlæti hjá Halldóri Halldórssyni og fjölskyldu "Helgufoss ræktun"
Osku kemur frá Mallorn´s ræktun Finnlandi en er ræktaður í Bandaríkunum. Hann er HD/ED A (frír), PRA/clear og hefur unnið sér inn þrjú finnsk meistarastig.
Osku er algjör draumaprins og er vart hægt að finna hund með yndislegra skap!
Við þökkum Anu kærlega fyrir að treysta okkur fyrir þessum yndislega Labba-strák :)
Ps. Loksins komin ný gestabók! :) Endilega kvittið! 21/11/2008
|
|
Tíbráar Tinda S-gotið 4 ára í dag!
Við óskum Labradorunum Tíbráar Tinda Serenu Sól, Snerpu Sól, Skorra, Sóloni Snæ, Stóra Hyl og Svarta Sambó (Bassa) til hamingju með 4 ára afmælið :)
Mynd: Serena Sól 17/11/2008
|
|
Augnskoðun og afmæli Flórensar!
Tíbet spaniel hundarnir Tíbrá og Tangó voru augnskoðuð í október og niðurstöðurnar voru þær að þau eru án arfgengra augnsjúkdóma!
Í október átti gamla daman okkar hún Flórens afmæli og er hún orðin 13 ára. Hún er við góða heilsu og passar vel upp á að ráðskast reglulega með heimilisfólk og hunda.
Mynd: Tíbráar Tinda Tango For Two 17/11/2008
|
|
Besti öldungur sýningar - Nýr ISCH - Nýr INT CH :)!
Alþjóðleg haustsýning HRFÍ 27.-28. september 2008
Labrador retriever - Dómari Fredrik Norgren frá Svíþjóð (57 skráningar) BHT 1 - meistarastig, cacib - Tegundahópur 3. sæti: Tíbráar Tinda Serena Sól Besti rakki 4: Tíbráar Tinda Töffarinn Jenni 2. sæti í opnum flokki, excellent: Tíbráar Tinda Tígurinn Tumi
Afghan hound - Dómari Jose Luis Payro frá Mexíkó BHT 2- meistarastig, cacib - Punapaulan Yasmin "Chelsea" Besti hvolpur tegundar 1 - Affietude King of Pride Rock "Safír" Besti hvolpur tegundar 2 - Affietude Standing in the Spotlight "Díva" Besti rakkahvolpur 2-heiðursverðlaun - Affietude Hakuna Matata "Valiant" Besti tíkarhvolpur 2-heiðursverðlaun - Affietude It´s Magic Everywhere "Kiara"
Tíbet spaniel - Dómari Juan Luis frá Mexíkó BHT - Tegundahópur 2. sæti: INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix "Tíbrá" BHT 2 - Besti öldungur sýningar 1: INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino BR 2-cacib (INT CH): ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo
Mynd: Tamino og Auður Sif í stóra hringnum 1/10/2008
|
|
Fígó orðinn pabbi!
Laugardaginn 19. júlí sl. fæddi Tessie (ISCH Toyway Ca-Isla) tvo stráka en stoltur faðir hvolpanna er ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo.
Áhugasamir hafi samband við Berglindi Jónsdóttur hjá Perlu-Lindar ræktun á netfangið bbj@simnet.is
eða Auði Valgeirsdóttur í s. 557-5622 e. kl. 13.
22/07/2008
|
|
Sumarsýning HRFÍ!
Sumarsýning HRFÍ var haldin helgina 28.-29. júní sl.
Á laugardeginum voru Labrador hundarnir sýndir og var dómarinn að þessu sinni Henric Fryckstrand frá Svíþjóð. Besti hundur tegundar var Volcano´s Royal Affaire Extraordinaire sem er pabbi Tíbráar Tinda T-gotsins. Þetta var í annað sinn á einum mánuði sem Lubbi sigraði tegundina! Hreint út sagt frábær árangur :)
Tíbráar Tinda Serena Sól var 3. besta tík tegundar með meistaraefni.
Tíbráar Tinda Lóla varð í 1. sæti í unghundaflokki með excellent.
Á sunnudeginum var komið að Tíbet spaniel hundunum og voru þeir dæmdir af Kurt Nilson frá Svíþjóð. Tíbrá (INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix) var valin besti hundur tegundar og komst svo í 6 hunda úrslit í tegundahópi 9. Fígó (ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo) varð besti rakki tegundar.
Mynd: Auður Sif og Tíbrá ásamt Kurt Nilson dómara 22/07/2008
|
|
Sérsýning Retrieverdeildar HRFÍ á Fossatúni!
Sérsýning Retrieverdeildar HRFÍ var haldin á Fossatúni 14. júní sl.
Tíbráar Tinda Töfrandi Lóla var valin 2. besta tík tegundar aðeins 16 mánaða gömul!
Pabbi Lólu, Volcano´s Royal Affaire Extraordinaire, var valinn besti hundur tegundar og besti hundur sýningar :)
Mynd: Lóla á Fossatúni
22/07/2008
|
|
Tíbrá alþjóðlegur meistari!
Tíbrá fékk á dögunum staðfestingu frá FCI um það að hún er orðin alþjóðlegur meistari! Þannig að núna ber hún nafnið INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix :) 22/07/2008
|
|
Affietude Afghan Hound!
Dóttir okkar, Auður Sif, fékk sitt eigið ræktunarnafn samþykkt hjá FCI. Ræktunarnafnið er Affietude og mun hún auðkenna ræktun sína á Afghan Hound með þessu glæsilega ræktunarnafni. Innilega til hamingju!
Nýjar myndir af hvolpunum má finna á þeirra eigin myndasíðu sem er http://picasaweb.google.com/auja83 16/05/2008
|
|
Augnskoðun-Góðar fréttir!
Tíbráar Tinda Serena Sól (Labrador), ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo og Toyway Akbar Khan "Vikki" voru öll augnskoðuð 12. apríl sl. og án arfgengra sjúkdóma.
Afkvæmi Fígós þau Perlu-Lindar Ísadóra og Perlu-Lindar Jökull voru einnig augnskoðuð og eru án arfgengra sjúkdóma. 17/04/2008
|
Afghan hvolpar komnir í heiminn!
6 Afghan hvolpar litu dagsins ljós 6. og 7. apríl. 3 strákar og 3 stelpur.
Strákarnir eru í litunum back and tan, golden black masked og cream en stepurnar black and tan (2) og golden black masked.
Hvolparnir voru allir fæddir í góðri þyngd. Móður og hvolpum heilsast vel.
Fleiri myndir hér 8/04/2008
|
|
|
|