Okkar
bestu óskir um gleðilegt ár með þökk
fyrir það gamla og allar góðu stundirnar
á liðnum árum.
Megi
nýja árið færa ykkur öllum gleði,
góða heilsu, góða stundir og árangur!
Knús frá Auju, Chelsea og Dívu - Affietude
ræktun
We
wish you all a happy, healthy, successful new year! Thank you
for great moments in 2008.
Hugs from Auja, Chelsea and Díva - Affietude kennel
Mér
hlotnaðist sá mikli heiður að vera boðið
að dæma finnsku meistarakeppnina í ungum sýnendum
á Finnish Winner 2008. Sýningin, sem er sú
stærsta í Finnlandi og er lokasýning ársins,
var haldin í Helsinki helgina 13.-14. desember sl.
20 keppendur voru skráðir til leiks en í Finnlandi
eru 20 keppnir yfir árið sem gilda í lokakeppnina
og sá sem sigrar í einni þessara keppna hefur
rétt til að taka þátt í lokakeppninni.
Sigurvegari lokakeppninnar keppir fyrir hönd Finnlands í
alþjóðlegri keppni ungra sýnenda (International
Junior Handling Final) á Crufts.
Sigurvegari keppninnar var 17 ára stúlka, Noora
Jyly, sem sýndi Miniature Poodle og verður gaman að
fylgjast með henni á Crufts 2009!
I was invited by the Finnish Kennel Club to judge the Finnish
Junior Handling Championships at their big Finnish Winner show
which was held 13.-14. of December. This invitation is a huge
honour for me and I was thrilled!
20 junior handlers were entered to the final but they had earned
their ticket to this final on the 20 qualification shows throughout
the year. My winner was a 17 years old girl, Noora Jyly, who handled
a Miniature
Poodle. She will represent Finland in the International Junior
Handling Final at Crufts 2009!
Huge congratulations to Noora and the other four girls in my top
5.
Kiitos (thank you) to the Finnish Kennel Club for inviting me
to judge the final. I was so pleased with the overall quality
of the Finnish junior handlers!


Laugavegsgangan
Laugavegsganga HRFÍ var haldin 1. nóvember sl. og
að sjálfsögðu voru
Affietude Afghanar mættir á svæðið. Sjá
myndir hér.

Dog-parade
The Icelandic kennel club organized
a dog-parade down the main street in Reykjavík city on the
1st of November. Of course the Affietude Affies didn´t miss
this great event!
Photos
from the parade here
Ný og endurbætt síða!
Endurbætur hafa staðið yfir á heimasíðunni
og keypti ég einnig nýtt lén fyrir hana www.affietude.com
Mig langar að þakka Önju
Björgu vinkonu minni og heimasíðustjóra
kærlega fyrir glæsilega síðu!
New and refreshed website!
My website has been changing a bit during the last days and also
has a new domain www.affietude.com Thank you so much to my friend
and webmaster, Anja
Björg, for updating this really nice website!
Alþjóðleg haustsýning HRFÍ
-
Chelsea íslenskur meistari!
Alþjóðleg haustsýning HRFÍ var haldin
helgina 27.-28. september sl. og gekk vægast sagt frábærlega!
Á laugardeginum voru Afghan hundarnir og Labrador hundarnir
sýndir.
Chelsea var
skráð til leiks ásamt hvolpunum sínum
Dívu (Affietude Standing in the Spotlight), Kiöru
(Affietude It´s Magic Everywhere), Safír (Affietude
King of Pride Rock) og Valíant (Affietude Hakuna Matata).
Dómari var Jose Luis Payro Duenas frá Mexikó.
Chelsea var
besta tík tegundar með íslenskt meistarastig
og sitt 3. cacib og er núna orðin íslenskur
meistari (ISCH)! Hún endaði svo sem 2. besti hundur
tegundar á eftir Summerstorm´s Dorian Day sem einnig
fékk sitt síðasta meistarastig á sýningunni
og gerði svo enn betur og sigraði tegundahóp 10
og endaði svo sem besti hundur sýningar 3! Innilega
til hamingju Sunníva og Dorian!
Affietude
hvolparnir fengu allir heiðursverðlaun og endaði Safír
sem besti hvolpur tegundar og Díva sem besti 2. hvolpur
tegundar. Innilega til hamingju Stefanie og Ísleifur með
prinsinn!
Ég sýndi einnig Tíbráar Tinda Serenu
Sól í eigu mömmu og systur minnar, Berglindar
og varð hún besti hundur tegundar með sitt 2. meistarastig
og cacib og endaði svo í 3. sæti í tegundahóp
8! Dómari var Fredrik Norgren frá Svíþjóð.
Á sunnudeginum
var komið að Tíbet spaniel hundunum og sýndi
ég Tíbrá (INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix)
og Tamino (INT CH ISCH Tíbráar Tinda Tamino).
Tíbrá varð besti hundur tegundar og endaði
svo í 2. sæti í tegundahóp 9 á
eftir fallegum Papillon hundi í eigu Írisar Gunnarsdóttur,
eiganda Affietude I´m Gonna B a Mighty King „Aldo
Cavalli“. Innilegar hamingjuóskir til Írisar
og fjölskyldu!
Tamino, næstum 11 ára, gerði sér lítið
fyrir og varð 2. besti hundur tegundar og varð síðan
besti öldungur sýningar! ISCH Tíbráar
Tinda Un Bel Figo hlaut sitt 4. cacib á sýningunni
og er núna orðinn INT CH.
Til hamingju elsku mamma og pabbi með frábæran
árangur!
Reykjavík International Autumn Show
-Chelsea gains her ISCH title!
Reykjavík
International show was held the 27.-28. of September and we had
a fantastic show! On
Saturday Afghans and Labradors were judged.
Chelsea was entered as well as four of her babies Díva
(Affietude Standing in the Spotlight), Kiara (Affietude It´s
Magic Everywhere), Safír (Affietude King of Pride Rock)
and Valíant (Affietude Hakuna Matata). Judge was Jose Luis
Payro Duenas frá Mexico.
Chelsea was BOS and gained her ISCH title and 3rd Cacib! BOB was
Chelsea´s friend, Summerstorm´s Dorian Day, who also
gained his ISCH title and ended up winning the group and was BIS3!
Huge congratulations to Sunníva and Dorian!
The Affietude pups all got price of honor and BOB puppy was Safír
and BOS Díva! Congratulations to Safír´s owners
Stefanie and Ísleifur!
I also
handled my mother´s and sister´s Labrador bitch Tíbráar
Tinda Serena Sól who was BOB (57 entries) and BIG 3rd!
She got her 2nd cac and 1st cacib! Judge was Fredrik Norgren from
Sweden. Congrats to my sister Berglind!
On Sunday
it was the Tibbies´ turn and we had three entered.
As usually I handled Tíbrá (INT CH ISCH Toyway Ama-Ry-Lix)
and the almost 11 years old Tamino (INT CH ISCH Tíbráar
Tinda Tamino). Tíbrá was BOB and BIG 2 after a gorgeous
Papillon male who ended up as BIS2! He is owned by my good friend
and puppy owner Íris Gunnarsdóttir, owner of Affietude
I´m Gonna B a Mighty King „Aldo Cavalli“. Huge
congratulations to Íris and her family!
Tamino was BOS and ended up as BIS veteran! Fígó
(ISCH Tíbráar Tinda Un Bel Figo) was best male 2nd
and got his 4th cacib so now we just wait for his INT CH title
to be confirmed from the FCI!
Congratulations to my dear parents on these great results!
9.10.2008
Opin sýning
Mjóhundadeildar HRFÍ - Chelsea besti hundur sýningar!
Opin
sýning Mjóhundadeildar var haldin laugardaginn 20.
september sl. í reiðhöll Gusts í Kópavogi.
Fjöldinn allur af hundum úr tegundahópum 2 og
10 ásamt íslenska fjárhundinum, var skráður
til leiks.
Dómari sýningarinnar var Yvonne Ljunquist frá
Svíþjóð en hún er þekkt fyrir
ræktun sína á Afghan hundum undir ræktunarnafninu
Alphaville´s.
Chelsea og Affietude hvolpaskottin Díva (Affietude Standing
in the Spotlight), Kiara (Affietude It´s Magic Everywhere),
Safír (Affietude King of Pride Rock) og Valíant (Affietude
Hakuna Matata) voru skráð til leiks og gekk framar öllum
vonum!
Chelsea var
valin besti Afghan hundurinn gerði enn betur og endaði
sem Besti hundur sýningar!
Díva
var besti hvolpur tegundar og annar besti hvolpur sýningar
undir dómaranum Moniku Karlsdóttur. Safír
var besti hvolpur tegundar 2 og Kiara og Valíant fengu
bæði heiðursverðlaun frá dómaranum.
The Sighthound club´s Open show - Chelsea wins
BEST IN SHOW
The Sighthound Club´s Open Show was held on the 20th
of September and many dogs from groups 2 and 10 as well as the
Icelandic sheepdog, were entered to the show. The judge was Yvonne
Ljunquist (kennel Alpaville´s), a known Afghan Hound breeder
from Sweden.
Chelsea
and her Affietude puppies Díva (Affietude Standing in the
Spotlight), Kiara (Affietude It´s Magic Everywhere), Safír
(Affietude King of Pride Rock) and Valíant (Affietude Hakuna
Matata) were entered to the show and did great!
Chelsea
was BOB Afghan and Best in show!
Díva
was BOB puppy and BIS 2 puppy under Monika Karlsdottir from Iceland.
Safír was BOS puppy and Kiara and Valiant both got price
of honor from Yvonne,
Thank
you Yvonne for appreciating my Afghans so much!
9.10.2008
Fréttir af hvolpunum
Affietude Afghan hvolparnir fengu allir frábæra eigendur
og eru nú orðnir 6 mánaða! Ég hélt
eftir golden black masked tík sem ég kalla Dívu
en í ættbók heitir hún Affietude Standing
in the Spotlight. Ég og Birna Willard og fjölskylda
eigum svo saman cream rakkann Valíant sem í ættbók
heitir Affietude Hakuna Matata og býr hann í góðu
yfirlæti hjá Birnu og fjölskyldu.
News of the Affietude puppies
The Affietude Affie puppies all got fantastic owners and are now
6 months old! I kept a golden black masked bitch from the litter
who I call Díva. Her pedigree name is Affietude Standing
in the Spotlight. I also co-own a cream male with Birna Willard
and her family. He is called Valíant, Affietude Hakuna Matata,
and lives with Birna and her great family who take such good care
of him.